fbpx
Mánudagur 16.mars 2026
433Sport

Ívar um skiptin: „Mér leið eins og ég væri ekki lengur að vaxa, 100 prósent bara eitthvað andlegt hjá mér“

433
Sunnudaginn 15. mars 2026 10:30

Mynd: Breiðablik

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Höskuldur Gunnlaugsson og Ívar Örn Árnason, leikmenn Breiðabliks, voru gestir Helga Fannars Sigurðssonar í Íþróttavikunni.

Ívar gekk í raðir Breiðabliks á dögunum frá uppeldisfélaginu KA. Það var ekki auðvelt að fara frá félaginu en hann er sáttur við ákvörðunina.

„Það var hugsunarháttur hjá mér að lifa ekki í einhverju ef og hefði. Ef ég hefði ekki gert þetta núna, hvenær ætlaði ég þá að gera það? Ég er ekki að verða yngri og geri mér grein fyrir því,“ sagði Ívar.

En þurfti hann að hafa eitthvað fyrir því að koma félagaskiptunum í gegn?

„Að vissu leyti. Auðvitað vildi KA ekkert sleppa mér og ég skildi það mjög vel. Ég leit bara á þetta þannig að ég þyrfti að fá meiri áskorun. Ég var kominn í þægindaramma að einhverju leyti. Mér leið eins og ég væri ekki lengur að vaxa, ekkert tengt KA, 100 prósent bara eitthvað andlegt hjá mér. Þegar ég frétti af áhuga Breiðabliks vildi ég keyra á þetta og félögin finndu upphæð sem allir eru sáttir með.“

Þátturinn er í spilaranum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Tudor á því að Kinsky muni stíga upp úr erfiðleikunum

Tudor á því að Kinsky muni stíga upp úr erfiðleikunum
433Sport
Fyrir 2 dögum

Höskuldur var svekktur með ákvörðun Breiðabliks – „Ég er ekkert feiminn við að segja það“

Höskuldur var svekktur með ákvörðun Breiðabliks – „Ég er ekkert feiminn við að segja það“
433Sport
Fyrir 2 dögum

United á eftir Fernandes sem gæti verið til sölu í sumar

United á eftir Fernandes sem gæti verið til sölu í sumar
433Sport
Fyrir 2 dögum

Vilja framherja þrátt fyrir mikla eyðslu síðasta sumar

Vilja framherja þrátt fyrir mikla eyðslu síðasta sumar