
Archie Gray, leikmaður Tottenham, tjáði sig fyrstur leikmanna um mistök markvarðarins Antonin Kinsky í 5-2 tapi gegn Atletico Madrid í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í gær.
Kinsky, sem var að leika sinn fyrsta leik í Meistaradeildinni, gerði tvö slæm mistök sem leiddu til marka Atletico, sem komst í 3-0 á fyrstu 15 mínútunum. Eftir seinni mistökin ákvað stjórinn Igor Tudor að taka tékkneska markvörðinn af velli.
Gray sagðist finna til með liðsfélaga sínum en lagði áherslu á að slíkt væri hluti af leiknum.
„Mistök gerast, þau eru hluti af fótbolta. Tony er ungur. Við gerum allir mistök, sérstaklega þegar við erum ungir. Hann er sterkur andlega og mun komast í gegnum þetta,“ sagði Gray.
Liðin mætast aftur í London eftir viku og þarf Tottenham þar að vinna upp þriggja marka forskot.