
Arsenal sækir Bayer Leverkusen heim í kvöld í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.
Mikel Arteta, stjóri Arsenal, staðfesti að miðvörðurinn William Saliba sé orðinn klár eftir ökklameiðsli og geti spilað. Saliba hefur misst af síðustu tveimur leikjum Arsenal.
Hins vegar verður fyrirliðinn Martin Ödegaard ekki með í leiknum, en hann er ekki búinn að jafna sig á meiðslum.
Arteta segir að einnig sé óvissa með þátttöku Riccardo Calafiori og Leandro Trossard, en aðrir eru klárir í slaginn.