
Manchester United hefur áhuga á að krækja í tvo leikmenn Nottingham Forest í sumar, þá Elliot Anderson og Morgan Gibbs-White, samkvæmt Daily Mail.
Eftir að Casemiro tilkynnti að hann yfirgefi United í lok tímabils hefur félagið verið orðað við fjölda miðjumanna. Anderson, sem er 23 ára, hefur vakið mikla athygli fyrir frábæra frammistöðu í ensku úrvalsdeildinni í vetur.
Samkvæmt fréttum hefur United mikinn áhuga á Anderson en þarf að kljást við samkeppni frá Liverpool, Chelsea og Manchester City.
Þá fylgist United einnig grannt með Gibbs-White. Forest er í fallbaráttu og fall myndi þýða að verðmiði beggja leikmanna verður mun viðráðanlegri.