fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Jóhannes Karl sagður setja upp harðar reglur í Hafnarfirði – Bannar nikótínpúða á svæðinu

433
Fimmtudaginn 29. janúar 2026 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það virðist mikið ganga á í Kaplakrika en í vikunni var greint frá því að félagið vildi losna við Böðvar Böðvarsson, lykilmann hjá félaginu í mörg ár.

Böðvar hefur verið tjáð að hann geti fundið sér nýtt lið en Jóhannes Karl Guðjónsson nýr þjálfari liðsins virðist vilja breyta miklu.

FH setur stefnuna á að yngja upp lið sitt og virðist Jóhannes Karl ekki telja sig geta notað Böðvar í sumar sem hefur mikla reynslu úr efstu deild og atvinnumennsku.

Það virðist ekki bara innan vallar sem Jóhannes hefur skoðanir og reglur, því utan vallar er hann samkvæmt Þungavigtinni að breyta hlutunum. „Margir þjálfarar banna tómatsósu í matsalnum en hann bannar púðana,“ sagði Ríkharð Óskar Guðnason í þættinum.

Kristján Óli Sigurðsson segir að Jóhannes hafi bannað púðana. „Nikótínpúðar eru bannaðir í Krikanum, ég veit ekki hvort koffínpúðar séu bannaðir,“ sagði Kristján Óli.

„Það er mikilvægt fyrir FH að byrja mótið vel, þetta er alvöru pressa.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn