fbpx
Miðvikudagur 11.mars 2026
433Sport

Van Persie bregst við söngvum um sig – „Láttu þig hverfa“

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 11. mars 2026 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Robin van Persie segir að hann ætli ekki að hverfa frá starfi sínu sem stjóri Feyenoord þrátt fyrir að stuðningsmenn félagsins hafi kallað eftir að hann yrði rekinn.

Van Persie hefur staðið frammi fyrir gagnrýni  á tímabilinu og ekki síst eftir 3-3 jafntefli við NAC Breda, en Feyenoord er í öðru sæti hollensku úrvalsdeildarinnar, 19 stigum á eftir PSV.

„Robin láttu þig hverfa,“ var meðal annars sungið í leiknum gegn Breda og Van Persie, sem gerði auðvitað garðinn frægan með Arsenal og Manchester United á leikmannaferlinum, varð var við það.

„Ég heyrði það. Það er ekki gaman en allir hafa rétt á sinni skoðun. Ég sinni mínu starfi fyrir Feyenoord. Ég geri það eftir bestu getu. Ég trúi á það sem ég er að gera. Ég mun ekki hlaupa í burtu,“ segir Van Persie hins vegar.

Þetta er annað starf Van Persie í þjálfun, en hann var hjá Heerenveen áður en hann tók við Feyenoord.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Vill til Spánar þrátt fyrir áhuga innan Englands

Vill til Spánar þrátt fyrir áhuga innan Englands
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Dramatík í Newcastle – Ótrúlegur leikur í Madríd

Dramatík í Newcastle – Ótrúlegur leikur í Madríd
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum
Walker kallar þetta gott
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Gervigreindin raðar niður Evrópumeisturum komandi ára – Afar óvænt nafn á bikarinn í fyrsta sinn

Gervigreindin raðar niður Evrópumeisturum komandi ára – Afar óvænt nafn á bikarinn í fyrsta sinn
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Gefur innsýn inn í endurhæfingu sína – Notar hjól sem vekur athygli

Gefur innsýn inn í endurhæfingu sína – Notar hjól sem vekur athygli
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Segir frá sorglegum degi í herbúðum United á dögunum

Segir frá sorglegum degi í herbúðum United á dögunum
433Sport
Í gær

Ólátabelgurinn Barton í haldi lögreglu – Handtekinn eftir slagsmál í golfklúbbi

Ólátabelgurinn Barton í haldi lögreglu – Handtekinn eftir slagsmál í golfklúbbi
433Sport
Í gær

Jökull kallar eftir breytingum fyrir sumarið – „Er einfaldlega of stór til að næg stemning myndist þar“

Jökull kallar eftir breytingum fyrir sumarið – „Er einfaldlega of stór til að næg stemning myndist þar“