fbpx
Miðvikudagur 11.mars 2026
433Sport

Lögregla algjörlega hneyksluð á stórveldunum

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 11. mars 2026 17:00

Myndin tengist fréttinni ekki beint. Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jo Farrell, æðsti yfirmaður lögreglunnar í Skotlandi, hefur gagnrýnt Rangers og Celtic fyrir að hafa ekki fordæmt ofbeldi sem braust út eftir leik liðanna um helgina.

Óeirðir brutust út á Ibrox eftir að Celtic hafði unnið sigur. Nokkrir stuðningsmenn og lögreglumenn slösuðust og níu manns hafa verið handteknir vegna atvika tengdum leiknum.

Farrell sagði á fundi í skoska þinginu að hvorugt félagið hefði komið fram opinberlega til að fordæma ofbeldið. Hún sagði uppákomuna algjörlega til skammar og bætti við að meira þyrfti að gera til að tryggja öryggi fólks á fótboltaleikjum.

Samkvæmt lögreglu var meðal annars 47 ára maður ákærður fyrir árás á þjálfara og leikmann eftir að stuðningsmenn ruddust inn á völlinn, og 54 ára maður fyrir að ráðast á lögreglumann. Þá urðu fleiri handteknir vegna alvarlegrar líkamsárásar eftir leikinn.

Einnig varð tíu ára drengur fyrir því að fá mynt í sig í látunum og rannsókn stendur yfir á skemmdarverkum og veggjakroti í tengslum við leikinn.

Skoska knattspyrnusambandið hefur hins vegar fordæmt uppákomuna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Góð tíðindi fyrir stuðningsmenn City

Góð tíðindi fyrir stuðningsmenn City
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Var leikmaður Tottenham heppinn að fá ekki aftur rautt spjald? – Sjáðu myndbandið

Var leikmaður Tottenham heppinn að fá ekki aftur rautt spjald? – Sjáðu myndbandið
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Er orðinn sextugur en kærusturnar verða sífellt yngri – Stundaði kynlíf með þremur konum á einum degi

Er orðinn sextugur en kærusturnar verða sífellt yngri – Stundaði kynlíf með þremur konum á einum degi
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Van Persie bregst við söngvum um sig – „Láttu þig hverfa“

Van Persie bregst við söngvum um sig – „Láttu þig hverfa“
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Liverpool tapaði aftur í Tyrklandi

Liverpool tapaði aftur í Tyrklandi
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Meistaradeildin aukaatriði fyrir Tottenham

Meistaradeildin aukaatriði fyrir Tottenham
433Sport
Í gær

Juventus horfir til Totttenham í leit að varnarmanni

Juventus horfir til Totttenham í leit að varnarmanni
433Sport
Í gær

Real Madrid setur óvænt nafn á blað sitt

Real Madrid setur óvænt nafn á blað sitt