

Romario, sem varð heimsmeistari Brasilíu 1994 og sló í gegn PSV og Barcelona, varð sextugur á dögunum. Hann er ekki aðeins þekktur fyrir ótrúlega framgöngu á vellinum, heldur einnig fyrir umdeildan lífsstíl utan hans.
Romario hefur til að mynda sjálfur lýst því yfir að hann hafi náð að stunda kynlíf með þremur konum á sama degi.

„Ég er 100% ótrúr, ég tel mig vera frábæran í kringum kvenfólk,“ sagði Romario, sem hefur verið giftur þremur konum og á átta börn.
Í seinni tíð hefur Romario verið mikið í kringum mun yngri konur. Hann hefur þá talað opinskátt um kynlíf og sagt að það hafi hjálpað honum að einbeita sér á leikdögum. Hefur hann hvatt leikmenn í dag til að tileinka sér þetta.
Romario er áfram reglulega í fréttum fyrir kvennafár sitt og er ekki útlit fyrir að það minnki þó hann sé kominn yfir sextugt.