fbpx
Þriðjudagur 10.mars 2026
433Sport

Walker kallar þetta gott

Helgi Fannar Sigurðsson
Þriðjudaginn 10. mars 2026 21:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kyle Walker hefur ákveðið að hætta að gefa kost á sér í enska landsliðið.

Þessi 35 ára gamli bakvörður Burnley lék alls 96 landsleiki fyrir England og tók þátt í fimm stórmótum. Hann spilaði síðast með landsliðinu í vináttulandsleik gegn Senegal í júní 2025.

Walker þreytti frumraun sína árið 2011 gegn Spáni og festi sig fljótt í sessi sem lykilmaður. Hann lék á heimsmeistaramótunum 2018 og 2022 og á Evrópumótunum 2016, 2021 og 2024.

Undir stjórn Gareth Southgate var Walker fastamaður í vörn Englands og hjálpaði liðinu í úrslitaleiki EM 2021 og 2024. Hann var einnig varafyrirliði liðsins á síðara mótinu.

Walker skoraði eitt landsliðsmark á ferlinum, gegn Úkraínu árið 2023.

„Þetta hefur verið magnað, en nú er þessum kafla lokið,“ sagði Walker og bætti við að það hafi verið mikill heiður að spila fyrir land sitt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Segir frá sorglegum degi í herbúðum United á dögunum

Segir frá sorglegum degi í herbúðum United á dögunum
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Neymar þreyttur þegar Ancelotti ætlaði að sjá hann – Setur HM þáttöku hans í uppnám

Neymar þreyttur þegar Ancelotti ætlaði að sjá hann – Setur HM þáttöku hans í uppnám
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Jökull kallar eftir breytingum fyrir sumarið – „Er einfaldlega of stór til að næg stemning myndist þar“

Jökull kallar eftir breytingum fyrir sumarið – „Er einfaldlega of stór til að næg stemning myndist þar“
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Útskýrir orð sín um Carrick eftir að hann var sakaður um árás í hans garð

Útskýrir orð sín um Carrick eftir að hann var sakaður um árás í hans garð
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Eddie Howe horfir í gamla félagið

Eddie Howe horfir í gamla félagið
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Arsenal sagt leiða kapphlaupið um þýska landsliðsmanninn – Fer frítt í sumar

Arsenal sagt leiða kapphlaupið um þýska landsliðsmanninn – Fer frítt í sumar