
Óvenjulegt atvik átti sér stað í leik Preussen Munster og Hertha Berlin í þýsku B-deildinni þegar grímuklæddur stuðningsmaður tók úr sambandi VAR-skjá.
Atvikið átti sér stað undir lok fyrri hálfleiks þegar dómarinn Felix Bickel var sendur í skjáinn til að skoða mögulega vítaspyrnu eftir ábendingu frá VAR-dómaranum Katrin Rafalski.
Þegar Bickel kom að skjánum var hann hins vegar svartur. Í ljós kom að stuðningsmaður hafði hlaupið inn á völlinn og tekið tæknibúnaðinn úr sambandi.
Þar sem dómarinn gat ekki skoðað atvikið sjálfur þurfti Rafalski að taka lokaákvörðunina úr VAR-herberginu. Hún dæmdi brot og vítaspyrnu sem Hertha Berlin skoraði úr.
Í yfirlýsingu frá Preussen Munster sagði félagið að grímuklæddur áhorfandi hafi ólöglega farið inn á völlinn og tekið tæknibúnað úr sambandi.
Þýskir miðlar greindu einnig frá því að borði með skilaboðunum „takið VAR úr sambandi“ hefði verið sýndur í stúkunni skömmu eftir atvikið.