
Stjóri Benfica, Jose Mourinho, var rekinn af velli í 2-2 jafntefli gegn Porto í portúgölsku deildinni.
Benfica lenti 2-0 undir en náði að jafna seint í leiknum. Við það varð mikill æsingur og í kjölfarið fékk Mourinho rautt spjald eftir atvik við varamannabekk Porto.
Mourinho sagði eftir leik að dómarinn hefði haldið því fram að hann hefði sparkað bolta í átt að bekk Porto, sem hann neitaði alfarið.
„Ég sparkaði boltanum upp í stúkuna til að gefa stuðningsmanni hann, eins og ég hef oft gert eftir mörk,“ sagði Mourinho.
Aðstoðarþjálfari Porto, Lucho Gonzalez, fékk einnig rautt spjald eftir orðaskipti við Mourinho.
Samkvæmt Mourinho kallaði Gonzalez hann svikara ítrekað í leikmannagöngunum eftir leik.
Mourinho gerði garðinn frægan hjá Porto á sínum tíma og vann meðal annars Meistaradeildina með félaginu.