fbpx
Þriðjudagur 10.mars 2026
433Sport

Verulega ósáttur með Arsenal og aðferðir þeirra eftir gærkvöldið – „Er það það sem áhorfendur eru að borga fyrir?“

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 5. mars 2026 12:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fabian Hürzeler, knattspyrnustjóri Brighton, var afar ósáttur eftir 1-0 tap liðsins gegn toppliði Arsenal í ensku úrvalsdeildinni og sakaði gestina um að tefja leikinn og „búa til sínar eigin reglur“.

Arsenal tryggði sér sigurinn með marki frá Bukayo Saka snemma leiks. Markið reyndist eina skot þeirra á markið nánast allan leikinn, sem vakti gremju hjá heimamönnum á Amex-vellinum. Stuðningsmenn Brighton létu óánægju sína í ljós með því að baula bæði á dómara og leikmenn Arsenal vegna þess sem þeir töldu þá tefja leikinn of mikið..

Hürzeler lét gagnrýni sína ekki liggja á milli hluta eftir leikinn. „Það eru mismunandi leiðir til að vinna leiki,“ sagði hann.

„Ef Arsenal vinnur deildina mun enginn spyrja hvernig þeir gerðu það. En mér finnst þeir núna gera allt sem þeir geta til að vinna og ef úrvalsdeildin eða dómarar leyfa allt, þá verða þeir einfaldlega að búa til sínar eigin reglur.“

Þýski stjórinn sagði jafnframt að hann myndi aldrei reyna að vinna leiki með slíkum hætti. „Ég vil að liðið mitt spili fótbolta og haldi áfram að bæta sig. Allir tefja stundum leikinn, en það verða að vera ákveðin mörk. Þau mörk þurfa að vera sett af úrvalsdeildinni og dómurunum,“ sagði hann.

Hürzeler velti einnig fyrir sér hvort stuðningsmenn fengju raunverulega það sem þeir borguðu fyrir. „Stundum spilar maður 60 mínútur af fótbolta, en þegar þú spilar gegn Arsenal líður eins og leikurinn sé bara 50 mínútur. Er það það sem áhorfendur eru að borga fyrir?“ spurði hann.

Hann sagðist þó ekki vilja kenna dómaranum Chris Kavanagh um stöðuna. „Það er erfitt fyrir hann. Ætti hann að reka markvörðinn af velli fyrir tímaeyðslu? Það gerist aldrei. Þess vegna þarf skýrari reglur til að hjálpa dómurunum.“

Arsenal-stjórinn Mikel Arteta svaraði gagnrýninni stuttlega eftir leik og sagði hann  að svipuð ummæli hefðu oft heyrst frá mótherjum liðsins áður.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Gefur innsýn inn í endurhæfingu sína – Notar hjól sem vekur athygli

Gefur innsýn inn í endurhæfingu sína – Notar hjól sem vekur athygli
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Segir frá sorglegum degi í herbúðum United á dögunum

Segir frá sorglegum degi í herbúðum United á dögunum
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Ólátabelgurinn Barton í haldi lögreglu – Handtekinn eftir slagsmál í golfklúbbi

Ólátabelgurinn Barton í haldi lögreglu – Handtekinn eftir slagsmál í golfklúbbi
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Jökull kallar eftir breytingum fyrir sumarið – „Er einfaldlega of stór til að næg stemning myndist þar“

Jökull kallar eftir breytingum fyrir sumarið – „Er einfaldlega of stór til að næg stemning myndist þar“
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Segir Rúnar Kristins hafa þurft að slökkva elda á síðasta ári – „Been there done it, bought the T-shirt. Haldiði kjafti“

Segir Rúnar Kristins hafa þurft að slökkva elda á síðasta ári – „Been there done it, bought the T-shirt. Haldiði kjafti“
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Eddie Howe horfir í gamla félagið

Eddie Howe horfir í gamla félagið