
Félagaskipti markvarðarins Bento til Genoa hafa skyndilega siglt í strand, þrátt fyrir að allt hafi verið klárt fyrir komu hans til Ítalíu.
Genoa hafði náð samkomulagi við Al-Nassr um að fá Bento á láni í þessum mánuði. Brasilíski markvörðurinn var staðráðinn í að flytja til Ítalíu og átti að ganga frá skiptunum í kjölfar leiks Al-Nassr gegn Al-Hilal í gær.
Áformin breyttust hins vegar skyndilega þegar annar markvörður Al-Nassr, Nawaf Al-Aqidi, fékk rautt spjald í leiknum og verður í kjölfarið í leikbanni í að minnsta kosti tvo leiki.
Þar sem þriðji markvörður liðsins er meiddur telja forráðamenn Al-Nassr sig ekki geta leyft Bento að fara að svo stöddu.
Því hefur félagið ákveðið að fresta brottför Bento um nokkrar vikur, sem setur Genoa í erfiða stöðu. Ítalska félagið gæti nú farið að skoða aðra kosti í markvarðarstöðuna, nema Bento takist að knýja fram félagaskiptin síðar í glugganum.