Armando Martinez, forseti mexíkóska félagsins Pachuca, hlær að þeim sögusögnum að Neymar sé á leið til félagsins til að spila á HM félagsliða í sumar.
Neymar hefur óvænt verið orðaður við Pachuca undanfarið en það eru aðeins kjaftasögur að sögn Martinez.
Neymar er á mála hjá Santos í heimalandi sínu Brasilíu en samningur hans við félagið rennur út þann 30. júní.
,,Ég held að einhver blaðamaður hafi bara kastað nafninu hans fram í von um það að eitthvað lið í keppninni myndi bíta,“ sagði Martinez.
,,Ég nota ekki samskiptamiðla en ég byrjaði að fá smáskilaboð. Það var enginn sem bauð okkur að fá Neymar og við reyndum alls ekki við hann.“
,,Ég þurfti að hringja símtal til að athuga hvort það væri eitthvað til í þessu en fékk svarið nei, við getum ekki borgað fyrir Neymar í þeirri stöðu sem við erum í.“