Valgeir Valgeirsson leikmaður Breiðabliks veltir því fyrir sér hvernig Magnús Ingi Þórðarson leikmaður Fram slapp við leikbann eftir leik liðanna á mánudag.
Magnús tók þar Valgeir þéttingsföstu hálstaki en fékk ekki rauða spjaldið.
Höskuldur Gunnlaugsson fyrirliði Breiðabliks var rekinn af velli og fékk tveggja leikja bann fyrir ofsafengla framkomu. Kyle McLagan leikmaður Fram fékk einn leik.
Höskuldur fór mikinn eftir að hafa jafnað leikinn 1-1 úr umdeildri vítaspyrnu. Valgeir veltir því fyrir sér hvernig Magnús sleppur við bann en Höskuldur fær tvo leiki.
„Höggi 2 leikja bann en hvað er þetta þá,“ skrifar Valgeir á X-inu.
Höggi 2 leikja bann en hvað er þetta þá pic.twitter.com/YPKpYdeWDH
— valgeir valgeirsson (@valgeirvalgeirs) June 24, 2025