Enskir götumiðlar halda því fram í dag að Liverpool sé reiðubúið að gera Alexander Isak að dýrasta leikmanni enska boltans.
Liverpool er nú þegar á barmi þess að bæta það met með kaupum á Florian Wirtz á 116 milljónir punda frá Leverkusen.
Talið er að Arne Slot hafi mikinn áhuga á því að kaupa Isak en fyrst þarf að selja Darwin Nunez.
Isak er 25 ára sænskur framherji sem hefur átt frábæra tíma hjá Newcastle en er orðaður við stærri lið.
Newcastle hefur verið með 150 milljóna punda verðmiða á honum en talið er að hægt sé að prútta það aðeins niður.