Alejandro Garnacho virðist vera afskaplega ánægður með það að vera kominn í sumarfrí en hann er leikmaður Manchester United.
Garnacho er umdeildur á meðal stuðningsmanan United en hann ku ekki leggja sig nógu mikið fram og er oft ásakaður um metnaðarleysi.
United hefur undanfarna daga verið í æfingaferð í Asíu og spilaði í raun ekki vel – líkt og á tímabilinu í ensku úrvalsdeildinni.
Garnacho birti mynd á samskiptamiðla þar sem hann er mættur aftur heim til Argentínu og fær nú að slaka á í friði.
,,Loksins,“ skrifaði Garnacho og virðist gefa í skyn að hann sé annað hvort þreyttur eða ánægður með að vera laus frá United og neikvæðri umræðu í bili.
Myndina sjálfa má sjá hér.