Fyrsta leik dagsins í Bestu deild karla er nú lokið en KR fékk þar Vestra í heimsókn klukkan 14:00.
Leikið var á AVIS vellinum en Vestri er það lið sem hefur komið langmest á óvart á þessu tímabili.
Vestri var fyrir leik í öðru sæti með 16 stig eftir níu leiki en KR var í því níunda með tíu stig.
Vestri komst yfir í leiknum í dag en Daði Berg Jónsson hefur spilað frábærlega í sumar og skoraði eftir 41. mínútu.
Þannig var staðan þar til á 76. mínútu en Eiður Gauti Sæbjörnsson jafnaði þá metin fyrir KR með skoti af stuttu færi innan teigs.
Samúel Samúelsson, formaður Vestra, var hundfúll eftir leik og segir að dómararnir hafi hjálpað KR í að næla í þrjú stig.
Vestri skoraði mark til að komast í 2-0 í þessum leik en það var dæmt af vegna rangstöðu og var sá dómur líklega ekki réttur.
KR þurfti hjálp frá gulaliðinu í dag! Algjörlega óboðlegt að það sjá þetta allir nema gaurinn sem á að dæma þetta !
— Samúel Samúelsson (@SSamelsson) June 1, 2025