

Arsenal er komið í undanúrslit enska deildabikarsins eftir leik gegn Crystal Palace í kvöld.
Spilað var á Emirates í London en heimaliðið hafði betur eftir vítaspyrnukeppni.
Maxence Lacroix mun vilja gleyma þessum leik sem fyrst en hann skoraði sjálfsmark fyrir Palace og klikkaði á sinni spyrnu í vítakeppninni.
Marc Guehi skoraði eina mark Palace á 90. mínútu til að tryggja liðinu áframhaldandi möguleika.
Arsenal mætir Chelsea í undanúrslitum keppninnar.