

Fulham 1 – 0 Nottingham Forest
1-0 Raul Jimenez(’45, víti)
Lokaleik umferðarinnar í ensku úrvalsdeildinni er nú lokið en Fulham tók þar á móti Nottingham Forest.
Forest hefur verið á uppleið undanfarnar vikur en liðið þurfti þó að sætta sig við tap á erfiðum útivelli í kvöld.
Fulham vann leikinn á heimavelli og var þetta sjöundi sigur liðsins í deildinni eftir 17 umferðir og eru þeir í 13. sæti.
Forest er í 17. sætinu en er þó enn fimm stigum frá fallsæti og er í ágætis málum eftir erfiða byrjun.