
Troy Deeney, fyrrum framherji Watford, Birmingham og fleiri liða, lét leikmann Manchester United heyra það eftir 2-1 tap liðsins gegn Aston Villa í gær.
Mikla athygli vakti að Kobbie Mainoo var ekki í leikmannahópnum, vegna kálfameiðsla samkvæmt fréttum að utan. Það kemur aðeins viku eftir að bróðir hans mætti í treyju með áletruninni „Frelsið Kobbie Mainoo“, sem hefur vakið mikla umræðu.
Samkvæmt blaðamanninum Ben Jacobs studdi Mainoo skilaboðin sjálfur, en hann er allt annað en sáttur með stöðu sína undir stjórn Ruben Amorim og hversu lítið hann fær að spila.
Deeney var ómyrkur í máli í hlaðvarpinu The Football Exchange. „Ef þetta væri undir mér komið myndi ég bara leyfa honum að fara. Borga upp samninginn og áfram gakk,“ sagði Deeney og bætti við að Mainoo væri fáviti ef hann hefði vitað af treyjunni.
Deeney telur jafnframt að Mainoo myndi ekki komast í byrjunarlið neins toppliðs og gæti þurft að sætta sig við að fara til félags á borð við Everton eða Fulham.