fbpx
Þriðjudagur 10.mars 2026
433Sport

Dóri Árna heilt yfir sáttur við árin sex – „Hafi ríkt mikið traust á milli frá fyrsta degi til þess síðasta“

433
Sunnudaginn 30. nóvember 2025 17:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Halldór Árnason, fyrrum þjálfari Breiðabliks, var gestur Helga Fannars Sigurðssonar í nýjasta þætti af Íþróttavikunni á 433.is.

Halldór var látinn fara frá Breiðabliki í haust og þó ákvörðunin hafi verið svekkjandi fyrir hann skilur hann sáttur við félagið og leikmenn.

„Mér þykir mjög vænt um samband mitt við leikmenn og leikmannahópinn og mér líður svo að það hafi ríkt mikið traust á milli frá fyrsta degi til þess síðasta,“ sagði hann í þættinum.

Halldór gerði Blika að Íslandsmeisturum í fyrra á fyrsta tímabili sínu sem aðalþjálfari, en hann hafði einnig unnið titilinn sem aðstoðarþjálfari Óskars Hrafns Þorvaldssonar.

„Ég hef verið þarna í sex ár, eignast góða vini og nána og eytt miklum tíma með fólki. Heilt yfir var þetta frábær tími,“ sagði Halldór enn fremur.

Umræðan í heild er í spilaranum.

video
play-sharp-fill
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Eddie Howe horfir í gamla félagið

Eddie Howe horfir í gamla félagið
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Arsenal sagt leiða kapphlaupið um þýska landsliðsmanninn – Fer frítt í sumar

Arsenal sagt leiða kapphlaupið um þýska landsliðsmanninn – Fer frítt í sumar
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Fær ekkert bann – Þarf að borga tæpar 14 milljónir í sekt

Fær ekkert bann – Þarf að borga tæpar 14 milljónir í sekt
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Mjólkurbikarinn hefst á morgun

Mjólkurbikarinn hefst á morgun
433Sport
Í gær

Elías hefur litlar áhyggjur af því að vera á útivelli í úrslitaleiknum – „Við þurfum að fá fólkið okkar þangað“

Elías hefur litlar áhyggjur af því að vera á útivelli í úrslitaleiknum – „Við þurfum að fá fólkið okkar þangað“
433Sport
Í gær

Ungar stjörnur í miklum vandræðum vegna kynferðislegs myndbands með konu – Málið til rannsóknar

Ungar stjörnur í miklum vandræðum vegna kynferðislegs myndbands með konu – Málið til rannsóknar
Hide picture