fbpx
Þriðjudagur 10.mars 2026
433Sport

Eiður Smári laskaður eftir magnaðan feril – „Mér er illt alls staðar, ég get ekki farið út að hlaupa“

Hörður Snævar Jónsson
Laugardaginn 29. nóvember 2025 15:30

Eiður Smári Guðjohnsen / Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eiður Smári Guðjohnsen var gestur í Dr. Football hlaðvarpinu í dag þar sem rætt var um heilsu leikmanna og hvernig ferilinn fer með fótboltamenn.

Eiður átti magnaðan feril sem atvinnumaður og var það í 21 ár, hann hætti árið 2016 eftir Evrópumótið í knattspyrnu með íslenska landsliðinu.

Hjörvar Hafliðason stjórnandi Dr. Football var að ræða þessi mál og sagði að Eiður virtist í góðum málum með líkama sinn í dag eftir langan feril.

„Þú heldur það? Þú hefur ekki séð mig skokka, það er ástæða fyrir því,“ sagði Eiður Smári og hélt svo áfram.

„Mér er illt alls staðar. Ég get ekki farið út að hlaupa.“

Hann fór svo yfir helstu meiðslin sem hrjá sig. „Hægra hnéð á mér, ég er með brjóskskemmd, liðþófinn er eiginlega alveg farin, ég fékk beinmar í skvassi fyrir ári síðan sem er ennþá. Þetta er smá saman að verða búið.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Auglýsing sem vekur athygli – Hefur verið sakaður um að beita konur ofbeldi

Auglýsing sem vekur athygli – Hefur verið sakaður um að beita konur ofbeldi
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Eric Cantona tekur þátt í stóru verkefni á Íslandi

Eric Cantona tekur þátt í stóru verkefni á Íslandi
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

United bætir kraftmiklum miðjumanni á lista sinn

United bætir kraftmiklum miðjumanni á lista sinn
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Hræðileg paneka spyrna kostaði Brentford – West Ham í átta liða úrslit

Hræðileg paneka spyrna kostaði Brentford – West Ham í átta liða úrslit
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Drátturinn í enska bikarnum: Chelsea og Arsenal fengu létta drætti – Stórleikur City og Liverpool

Drátturinn í enska bikarnum: Chelsea og Arsenal fengu létta drætti – Stórleikur City og Liverpool
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Flækist inn í stórt lögfræðimál – Krefjast þess að fá bætur eftir svikin loforð

Flækist inn í stórt lögfræðimál – Krefjast þess að fá bætur eftir svikin loforð
433Sport
Í gær

Þreyttur á óvissunni hjá Tottenham og íhugar flutninga heim

Þreyttur á óvissunni hjá Tottenham og íhugar flutninga heim
433Sport
Í gær

Meira en helmingur liða hófu leik með mínusstig

Meira en helmingur liða hófu leik með mínusstig