fbpx
Laugardagur 08.nóvember 2025
433Sport

Faðir Florian Wirtz ræðir mjög erfiða byrjun hans á Englandi

Hörður Snævar Jónsson
Laugardaginn 8. nóvember 2025 11:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Faðir Florian Wirtz hefur brugðist við erfiðum byrjunartíma sonars síns hjá Liverpool og segir 116 milljóna punda kaupverðið ekki breyta því að aðlögun taki tíma. Wirtz, 22 ára, kom til félagsins frá Bayer Leverkusen í sumar eftir að Liverpool hafði betur gegn nokkrum stórliðum Evrópu í kapphlaupinu um þýska landsliðsmanninn.

Kaupin voru meðal þeirra stærstu í sögu ensku úrvalsdeildarinnar.

Hingað til hefur Wirtz þó ekki skorað né lagt upp mark í tíu deildarleikjum og hefur verið utan byrjunarliðs Arne Slot í nokkrum síðustu leikjum. Faðir hans, Hans Wirtz, segir fjölskylduna hafa búist við svona upphafi og að Florian sé nú að venjast hraða og kröfum ensku deildarinnar.

„Við ákváðum strax að meta fyrstu tíu leikina áður en dregnar væru ályktanir,“ sagði hann við Bild.

„Við og Florian erum fullkomlega sáttir. Hraðinn, baráttan og óskipulagði hraðinn voru áberandi fyrstu leikina, það er mikill munur frá þýska boltanum
.“
Hans segir son sinn þó greinilega passa vel inn til lengri tíma.

„Það eru enn hlutir sem þurfa að smella hjá liðinu og honum sjálfum. En ég vona að hann sé nógu góður til að aðlagast kröfunum og njóti þess jafn vel og í Þýskalandi.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Valur fær styrktarþjálfara frá Fram – Hefur starfað fyrir stór félög

Valur fær styrktarþjálfara frá Fram – Hefur starfað fyrir stór félög
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Mætti á sína fyrstu æfingu í tíu mánuði

Mætti á sína fyrstu æfingu í tíu mánuði
433Sport
Í gær

Arne Slot biður um meiri þolinmæði – Isak byrjar að æfa aftur í dag

Arne Slot biður um meiri þolinmæði – Isak byrjar að æfa aftur í dag
433Sport
Í gær

Í þriggja ára bann frá leikjum eftir hómófóbísk orð um leikmenn Chelsea og Diogo Dalot

Í þriggja ára bann frá leikjum eftir hómófóbísk orð um leikmenn Chelsea og Diogo Dalot