

David Beckham hefur loks hlotið einn af fáum heiðrum sem vantaði upp á glæsilegan feril hans, hann var í dag sæmdur riddarakrossi af Karli Bretakonungi á Windsor-kastala fyrir framlag sitt til íþrótta og góðgerðarmála.
Er nafn hans því nu orðið Sir David Beckham.
Beckham, sem er 50 ára, mætti í glæsilegum jakkafötum sem eiginkona hans, Victoria Beckham, hannaði sérstaklega fyrir athöfnina. Við hlið hans voru stoltir foreldrar hans, Ted og Sandra, og Victoria sem fylgdust með þegar hann laut höfði og fékk sverðskrossinn frá konunginum.
Konungurinn og nýi riddarinn, sem hafa þróað vinalegt samband á undanförnum árum vegna sameiginlegrar ástríðu fyrir garðyrkju og býflugum, töluðu saman og hlógu í þessari tilfinningaþrungnu athöfn.
Eftir að hann hafði verið heiðraður sagðist Beckham hafa orðið mjög snortinn. „Ég hef verið heppinn á ferlinum, unnið titla og upplifað stór augnablik en þetta er eitthvað sem ég hafði aldrei þorað að dreyma um. Að vera strákur frá austurhluta London og standa hér í Windsor-kastala, heiðraður af Hans hátign, er ótrúlegt,“ sagði Beckham.
Beckham, sem lék 115 landsleiki fyrir England og vann 25 titla á ferlinum, sagði þetta vera stoltasta augnablikið í hans lífi.