Atvik sem átti sér stað í beinni útsendingu hjá Livey í Lengjudeild karla í gær hefur vakið athygli. Grindavík vann þá HK.
Sá sem lýsti leiknum hafði áhyggjur af því að Adam Árni Róbertsson fyrirliði Grinadvíkur væri ekki að koma sér í færi.
Fyrr þennan sama dag hafði róttæka vinstri konan, Gréta Thunberg verið handtekinn við strendur Gaza ásamt hópi fólks. Var ætlun þeirra að færa fólki þar í landi fæði og klæði.
Gréta og hópur hennar var handtekinn af her Ísraels og haldið sem gíslum, er ætlunin að senda fólkið til heimalands síns.
„Adam er eins og Gréta Thunberg þarna frammi, bara gísl,“ sagði í beinni útsendingu leiksins.
Atvikið hefur vakið athygli og er hér að neðan.
„Adam er eins og Gréta Thunberg þarna frammi, bara gísl” pic.twitter.com/kK9P93QaEt
— Andri Eysteinsson (@andrieysteins) June 9, 2025