fbpx
Föstudagur 26.júlí 2024
433Sport

Agli finnst auglýsingarnar hallærislegar – Faðir leikmanns hjá KR lét ljót orð falla en eyddi ummælum sínum

433
Mánudaginn 22. apríl 2024 19:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Agli Helgasyni, sjónvarpsmanni finnst auglýsingar frá félagi sínu KR vandræðalegar. KR-ingar auglýsti í Morgunblaðinu og voru svo með skilti við Sæbrautana þar sem talað var um Stórveldið. Það nafn hafa stuðningsmenn KR notað um félag sitt um langt skeið.

Egill telur að félagið og stuðningsmenn þurfi að horfast í augu við raunveruleikann í dag frekar en að ræða um það sem gerðist í fortíðinni.

Egill deildi þessum orðum í stuðningsmannahóp KR á Facebook. „Stórveldisauglýsingar KR-inga á flettiskiltum við Sæbrautina eru satt að segja heldur vandræðalegar. Félagið státar af mjög misjöfnum árangri þessa dagana og aðstöðuleysið er ferlegt. Vonum að betri tíð sé í vændum. En við erum ekki alveg í stöðu til að láta svona – og grobb af þessu tagi er líka hallærislegt,“ skrifaði Egill.

Ekki eru allir sammála honum og fékk Egill yfir sig nokkur subbuleg ummæli, eitt af þeim kom frá faðir leikmanns í meistaraflokki KR. Sá eyddi ummælum sínum nokkru síðar. „Ætli þetta sé ekki bara í svipuðu ójafnvægi í dag og blóðsykurinn hjá þér síðastliðin 30 ár. Áfram KR,“ skrifaði sá en sá að sér.

Andrés Magnússon blaðamaður á Morgunblaðinu var ekki sammála Agli. „Guð forði oss frá því að fótboltaaðdáendur tali um klúbbinn sinn í hástigi, af nokkru oflæti og jafnvel belgingi. Hvað næst, að við tölum andstæðingana kannski niður líka?! Það gengi siðrofi næst,“ segir Andræés.

Egill segir að staða KR sé ekki góð í dag og hefur hann ekki mikla trú á liði Gregg Ryder í Bestu deildinni í sumar en liðið tapaði gegn Fram um helgina.

„Þetta eru auglýsingar sem blasa við vegfarendum á Sæbrautinni – sem eru langt í frá allir KR-ingar. Við mættum athuga að staða félagsins er ekkert sérstök, og þá horfa til annarra íþróttagreina en meistaraflokks karla. Mér segir svo hugur að félagið verði ekki í neinni toppbaráttu í sumar – höfum ekki einu sinni völl sem hægt er að spila á fyrr en síðar. Þessar auglýsingar eru ekki á vegum félagsins heldur einhverra framtakssamra einstaklinga. Kannski virka þær sem hópefli – kemur í ljós. Ef aðsókn eykst er það gott.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Tekur glæsilegt hús Greenwood á leigu – Borgar tvær og hálfa milljón á mánuði

Tekur glæsilegt hús Greenwood á leigu – Borgar tvær og hálfa milljón á mánuði
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Slot tjáir sig um hugsanleg félagaskipti

Slot tjáir sig um hugsanleg félagaskipti
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Kristján Óli lét gamminn geisa en fékk svar frá formanninum – „Þetta gæti orðið ófyrirgefanlegt“

Kristján Óli lét gamminn geisa en fékk svar frá formanninum – „Þetta gæti orðið ófyrirgefanlegt“
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Ótrúleg upprifjun af heimsfrægri stjörnu – Viðstöddum brugðið er hann skellti klámmynd í tækið

Ótrúleg upprifjun af heimsfrægri stjörnu – Viðstöddum brugðið er hann skellti klámmynd í tækið
433Sport
Í gær

Guðlaugur Victor er kominn til Englands

Guðlaugur Victor er kominn til Englands
433Sport
Í gær

Sú gullfallega birtir myndir af sér í fyrsta sinn eftir stórfréttir sumarsins: Er í vandræðum með að finna föt – Styttist í nýjan kafla í lífinu

Sú gullfallega birtir myndir af sér í fyrsta sinn eftir stórfréttir sumarsins: Er í vandræðum með að finna föt – Styttist í nýjan kafla í lífinu
433Sport
Í gær

Settu tilraunir sínar á ís vegna dómsmáls Alberts

Settu tilraunir sínar á ís vegna dómsmáls Alberts
433Sport
Í gær

Þarf líklega að bíða í ár eftir draumaskiptunum

Þarf líklega að bíða í ár eftir draumaskiptunum