Enska úrvalsdeildin er nú að berjast við kröfur frá Bandaríkjunum um að tveir leikir í deildinni verði spilaðir þar í landi.
NBC er að vinna að nýjum samning um sjónvarpsréttinn og er þetta ein af þeim kröfum sem eru uppi.
Vill NBC sjá tvo leiki í fyrstu umferð deildarinnar fara fram í Bandaríkjunum. Þar á meðal er krafa um að Manchester United og Chelsea mætist þar í landi.
Fótboltinn er í sókn í Bandaríkjunum með komu Lionel Messi í deildina og er þetta því ein af þeim kröfum sem NBC gerir í viðræðunum.
Óvíst er hvernig félög á Englandi taka í þetta en svona er að færast í aukanna en spænski konungsbikarinn er spilaður í Mið-Austurlöndum svo dæmi sé tekið.