Danski miðjumaðurinn Christian Eriksen hefur hafnað því að ganga í raðir Manchester United. Guardian greinir frá.
Eriksen er samningslaus. Hann samdi við Brentford í janúar og kom frá Inter.
Brentford vill semja áfram við leikmanninn en hann skoðar aðra möguleika.
Man Utd hafði verið nefnt til sögunnar en Eriksen fer ekki þangað.
Tottenham, fyrrum félag Danans, er sagt hafa mikinn áhuga á Eriksen. Er hann talinn opinn fyrir því að fara aftur til Norður-Lundúna.