Vanda Sigurgeirsdóttir formaður KSÍ er mjög vongóð um að ná endurkjöri á ársþingi sambandsins í lok mánaðarins. Vanda var gestur í sjónvarpsþætti okkar á Hringbraut í fyrradag.
Vanda fór víða yfir í viðtalinu og eitt af því sem rætt var um er aðstaðan á Laugardalsvelli. Ljóst er að ekki verður farið í framkvæmdir á næstunni gæti landsliðið þurft að spila í öðru landi.
,,Ég ætla vera bjartsýn um að við séum að fara sjá einhvað gerast, ekki bara fyrir fótboltann heldur líka hinar greinarnar. Við erum líka í vandræðum með aðstöðumál líkt og körfuboltinn og handboltinn. UEFA hefur verið að pikka í okkur og það er allt sem bendir til þess að við förum bráðum að vera í þeirri stöðu að þurfa spila okkar heimaleiki fyrir utan landssteinana,“ sagði Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ í þætinum 433.is á Hringbraut í fyrradag.
Ásmundur Einar Daðason ráðherra hefur lofað því að mikil uppbygging fari fljótlega af stað í Laugardalnum bæði fyrir fótbolta og aðrar íþróttir.
,,Við erum að reyna fjölga áhorfendum en bjóðum þeim síðan upp á þessa ömurlegu aðstöðu. Ég hef einnig lagt áherslu á þetta með tilliti til fólks með fötlun, aðstaðan er ömurleg fyrir þau. Við erum bara á undanþágu og eins og ég segi þá á ég bara von á bréfi frá UEFA eða FIFA þar sem þrýst verður á svör frá okkur um það hvað eigi að gera í þessum málum.“
Vanda er bjartsýn á að Reykjavíkurborg og ríkið nái saman um kostnaðarskiptingu við byggingu nýs þjóðarleikvagns.
,,Ég vona að þessi mál gangi upp en við getum ekki beðið að eilífu og þess vegna hef ég bara sagt það hreint og beint út að ef þetta lýtur út fyrir að fara vera áframhaldandi störukeppni þá er það bara okkar skylda að skoða aðra möguleika,“ sagði Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ í þættinum 433.is á Hringbraut í gærkvöldi.