
Sögusagnir um framtíð Jude Bellingham halda áfram. Kapphlaupið um þennan miðjumann Dortmund verður svakalegt.
Hinn 19 ára gamli Bellingham verður hvað eftirsóttasti leikmaður heims næsta sumar og mun alls ekki fara ódýrt. Umboðsmaður hans hefur sagt að hundrað milljónir evra verði líklega ekki nóg til að klófesta hann.
Englendingurinn ungi hefur verið orðaður við flest af stærstu félögum Evrópu. BILD sagði í gær frá því að líklegustu áfangastaðir hans væru Chelsea, Manchester City, Liverpool eða Real Madrid.
Nú segir Daily Mirror hins vegar að Bellingham sé efstur á óskalista Manchester United. Félagið sé tilbúið til að greiða 115 milljónir evra fyrir hann.
Það er talið nokkuð ljóst að Bellingham muni fara frá Dortmund næsta sumar. Sögusagnir um hvert munu hins vegar halda áfram.