Það var tilkynnt í gær að Gerard Pique væri að leggja skóna á hilluna eftir glæstan feril. Mikel Arteta, stjóri Arsenal, var ansi hissa þegar hann fékk fregnir af þessu.
Hinn 35 ára gamli Pique lék mest allan ferilinn með Barcelona. Þó lék hann með Manchester United frá 2004 til 2008.
Miðvörðurinn spilar sinn síðasta leik fyrir Börsunga um helgina, þegar liðið tekur á móti Almeria.

Á ferli sínum vann Pique Spánarmeistaratitlinn átta sinnum, Meistaradeild Evrópu þrisvar sinnum og bæði Heims- og Evrópumótið með spænska landsliðinu.
Arteta og Pique ólust báðir upp hjá Barcelona. Sá fyrrnefndi er fimm árum eldri.
Arteta var tjáð það á blaðamannafundi eftir 1-0 sigur Arsenal á Zurich í Evrópudeildinni að Pique væri að hætta. Það er óhætt að segja að spænski stjórinn hafi verið ansi hissa.
Myndband af þessu má sjá hér að neðan.
That reaction 😂
Mikel Arteta was all of us finding out about Gerard Pique's retirement 😅pic.twitter.com/3PDO5LdoOw
— Sky Sports Premier League (@SkySportsPL) November 3, 2022