

Brynjar Ingi Bjarnason leikmaður Vålerenga útilokar það að hann sé á heimleið þrátt fyrir erfiða tíma innan vallar.
Frá þessu greinir Fréttablaðið.
Brynjar hefur upplifað erfiða tíma síðustu mánuði þar sem hann hefur lítið spilað. Hann hefur verið orðaður við Val og KA.
„Ég er ekki á leiðinni heim til Íslands. Það er engin uppgjöf í mér,“ segir Brynjar við Fréttablaðið og segir sögusagnir um að hann gæti verið á heimleið ekki vera sannar.
Brynjar fór frá KA sumarið 2021 til Lecce á Ítalíu en stoppaði stutt þar áður en hann gekk til liðs við Vålerenga á þessu ári. Hann hefur ekki fundið taktinn og mátt þola mikla gagnrýna í norskum miðlum.
„Tímarnir hérna úti í Noregi hvað framhaldið varðar líta bara vel út að mínu mati. Ég hef gengið í gegnum erfitt tímabil en eins og staðan er núna lítur þetta vel út. Það stefnir í að ég sé að fara fá þessa síðustu leiki á tímabilinu.“