fbpx
Fimmtudagur 15.maí 2025
433Sport

Fyrsta skrefið í átt að því að spila leik í ensku úrvalsdeildinni í Bandaríkjunum

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 17. október 2022 12:00

Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Enska úrvalsdeildin hefur áhuga á því að halda sex liða mót í Bandaríkjunum næsta sumar. Er þetta talið fyrsta skrefið í því að færa einhverja leiki í ensku úrvalsdeildinni vestur um haf. The Athletic fjallar um málið.

Fótboltinn er alltaf að breytast og að verða vinsælli um allan heim. Þetta gera stjórnendur ensku úrvalsdeildarinnar sér vel grein fyrir og vilja nýta til fulls.

Undanfarin ár hefur NFL-deildin í Bandaríkjunum flutt leiki til Lundúna. Þrír leikir í deildinni verða leiknir á Tottenham Hotspur-vellinum á þessari leiktíð.

Það er ekki ólíklegt að enska úrvalsdeildin bregði á sama leik í framtíðinni, spili leik eða leiki í Bandaríkjunum.

Stjórnendur deildarinnar eru þó ekki enn tilbúnir í að færa keppnisleiki til Bandaríkjanna þar sem heimaleikir þykja of dýrmætir til að færa þá til annars lands.

Hins vegar er það nú til skoðunar að halda sex liða mót í Bandaríkjunum næsta sumar á vegum ensku úrvalsdeildarinnar.

Fjórtán félög hafa lýst yfir áhuga á að taka þátt í mótinu, sem yrðu leiknir bæði á Austur- og Vesturströnd Bandaríkjanna.

Sem fyrr segir er þó alls ekki hægt að útiloka að einn daginn verði leikur í ensku úrvalsdeildinni spilaður í Bandaríkjunum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Þrír miðverðir United mættu ekki á æfingu í dag

Þrír miðverðir United mættu ekki á æfingu í dag
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Ten Hag efstur á blaði fyrir stóra starfið sem er að losna

Ten Hag efstur á blaði fyrir stóra starfið sem er að losna
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Segir að United verði að losa sig við tíu leikmenn í sumar og nefnir nokkur nöfn

Segir að United verði að losa sig við tíu leikmenn í sumar og nefnir nokkur nöfn
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Segir frá spurningum sem hann fékk frá Bonnie Blue – „Ég væri í fangaklefa ef ég myndi tala svona“

Segir frá spurningum sem hann fékk frá Bonnie Blue – „Ég væri í fangaklefa ef ég myndi tala svona“
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Frábært framtak Amorim – Borgar úr eigin vasa svo starfsfólkið sjái úrslitin

Frábært framtak Amorim – Borgar úr eigin vasa svo starfsfólkið sjái úrslitin
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Viðræður um Cunha ganga virkilega vel

Viðræður um Cunha ganga virkilega vel
433Sport
Í gær

Gat ekki orða bundist eftir ógeðfellda hegðun stuðningsmanna Stjörnunnar – „Og börnin syngja með“

Gat ekki orða bundist eftir ógeðfellda hegðun stuðningsmanna Stjörnunnar – „Og börnin syngja með“
433Sport
Í gær

Gæti tekið áhugavert skref út fyrir landsteinana í sumar

Gæti tekið áhugavert skref út fyrir landsteinana í sumar