fbpx
Miðvikudagur 08.maí 2024
433

Lengjudeildin: Dramatík í tveimur jafnteflum – Fyrsti sigur KV

433
Fimmtudaginn 9. júní 2022 21:14

Gary Martin.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það var heldur betur dramatík í Lengjudeild karla í kvöld en þrír leikir fóru fram í sjöttu umferð sumarsins.

Dramatíkin var mikil á Selfossi þar sem Fylkismenn björguðu stigi þegar stutt var í lokaflaut leiksins.

Gary Martin hafði komið Selfyssingum í 2-1 í síðari hálfleik en Frosti Brynjólfsson jafnaði metin í uppbótartíma til að tryggja gestunum mikilvægt stig.

Selfoss er enn á toppnum taplaust með 14 stig en Fylkir er í öðru sætinu með 11.

Einnig með 11 stig er Fjölnir sem þurfti að sætta sig við stig gegn Grindvíkingum á útivelli á sama tíma.

Dagur Ingi Hammer Gunnarsson tryggði þar Grindavík stig stuttu eftir að Fjölnismenn höfðu komist í 2-1.

Fyrsti sigur KV er þá staðreynd en liðið vann Aftureldingu 2-1 þar sem Björn Axel Guðjónsson gerði sigurmark leiksins á lokamínútunni.

Selfoss 2 – 2 Fylkir
0-1 Nikulás Val Gunnarsson (’41 )
1-1 Hrvoje Tokic (’51 , víti)
2-1 Gary Martin (’55 )
2-2 Frosti Brynjólfsson (’90 )

Grindavík 2 – 2 Fjölnir
1-0 Aron Jóhannsson (‘7 )
1-1 Guðmundur Þór Júlíusson (’58 )
1-2 Lúkas Logi Heimisson (’86 )
2-2 Dagur Ingi Hammer Gunnarsson (’89 )

KV 2 – 1 Afturelding
1-0 Grímur Ingi Jakobsson (’70 )
1-1 Ásgeir Frank Ásgeirsson (’84 )
2-1 Björn Axel Guðjónsson (’90 )

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Fer endanlega frá Chelsea í sumar

Fer endanlega frá Chelsea í sumar
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Barcelona gæti ráðið Enrique á ný

Barcelona gæti ráðið Enrique á ný
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Arsenal og Manchester United áhugasöm um framherja sem fæst ódýrt – Annað félag leiðir þó kapphlaupið

Arsenal og Manchester United áhugasöm um framherja sem fæst ódýrt – Annað félag leiðir þó kapphlaupið
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Sakar leigusala um að hafa gert líf sitt að helvíti – Mætti fyrir utan og gægðist á glugga

Sakar leigusala um að hafa gert líf sitt að helvíti – Mætti fyrir utan og gægðist á glugga
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum
Silva aftur heim
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Þetta lið grófast í Bestu deildinni í upphafi móts – Athyglisvert hvar Víkingur er á listanum í ljósi umræðunnar

Þetta lið grófast í Bestu deildinni í upphafi móts – Athyglisvert hvar Víkingur er á listanum í ljósi umræðunnar
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Forsetinn staðfestir að Greenwood sé til sölu

Forsetinn staðfestir að Greenwood sé til sölu
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Ten Hag verður ekki rekinn fyrir bikarúrslitaleikin

Ten Hag verður ekki rekinn fyrir bikarúrslitaleikin
433
Í gær

Án þess að æfa hlóð Gylfi í þessa frammistöðu – Tölfræði hans varnarlega vekur sérstaka athygli

Án þess að æfa hlóð Gylfi í þessa frammistöðu – Tölfræði hans varnarlega vekur sérstaka athygli
433Sport
Í gær

Mourinho á sér draum um endurkomu á Old Trafford í sumar

Mourinho á sér draum um endurkomu á Old Trafford í sumar