Brentford hefur selt Patrik Gunnarsson til Viking í Noregi en hann var þar á láni fyrir áramót við góðan orðstír.
Patrik er 21 árs gamall en hann gekk í raðir Brentford árið 2018 og hefur átt góðu gengi að fagna.
Patrik var áður á láni í Danmörku en nú hefur norska félagið fest kaup á markverðinum.
Markvörðurinn hefur átt sæti í íslenska landsliðshópnum undanfarið en kaupverðið er ekki gefið upp.
Patrik Gunnarsson has joined @vikingfotball on a permanent move
Pat departs with the best wishes of everyone at #BrentfordFC https://t.co/xNUCZqWSjk
— Brentford FC (@BrentfordFC) January 17, 2022