fbpx
Þriðjudagur 03.mars 2026
433Sport

Lúðvík kveður kjaftasögurnar úr Vesturbænum í kútinn: Ekkert athugavert við skyndilegt brotthvarf framkvæmdarstjórans

Ritstjórn DV
Föstudaginn 4. júní 2021 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það vakti athygli margra þegar Jónas Kristinsson framkvæmdarstjóri knattspyrnudeildar KR sagði upp störfum sínum í maílok. Það er sérstaklega tímasetning hennar sem vakti furðu margra, daginn fyrir aðalfund félagsins. Jónas hefur lengi verið í starfi hjá KR en þeir KR-ingar sem blaðamaður hefur talað við sögðu að uppsögn Jónasar hefði komið þeim í opna skjöldu.

Á aðalfundi KR var kosið um nýjan formann félagsins en Gylfi Aðalsteinsson hafði ákveðið að láta af störfum sem slíkur. Páll Kolbeinsson, sem tengist körfuboltadeild KR, og Lúðvík S. Georgsson voru í framboði. Samkvæmt heimildum var Jónas í hópi þeirra sem studdi Pál en Lúðvík hafði betur í slagnum um sætið á miklum átakafundi.

Eins og áður segir sagði Jónas starfi sínu lausi degi fyrir aðalfund félagsins þegar ljóst var að Lúðvík yrði kjörinn formaður. Frá uppsögn Jónasar hafa rætnar gróusögur um uppsögn hans flogið manna á milli, meðal annars um meint misferli sem Lúðvik hyggðist ljóstra upp um.

Jónas sagði upp daginn fyrir aðalfund, ég held að þessar sögur séu mest gróusögur,“ sagði Lúðvík um málið.

Hann kvaðst vera meðvitaður um þær kjaftasögur sem væru í gangi en segir þær ekki á rökum reistar. „Ég get alveg fullvissað um það að það er ekkert til í þessu, það er búið að ganga frá starfslokasamningi við Jónas sem skrifað verður undir á næstunni. Hann mun verða okkar innan handar í starfinu á næstu mánuðum, svo að yfirfærslan gangi smurt fyrir sig,“ sagði Lúðvík.

Ekki náðist í Jónas við vinnslu fréttarinnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Stjarnan æfir hjá utandeildarliði á meðan hann bíður eftir niðurstöðu í málinu

Stjarnan æfir hjá utandeildarliði á meðan hann bíður eftir niðurstöðu í málinu
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Ofurtölvan stokkar spilin: Arsenal heldur toppsætinu allt til loka – Högg fyrir Chelsea

Ofurtölvan stokkar spilin: Arsenal heldur toppsætinu allt til loka – Högg fyrir Chelsea
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Fullyrt að Aron Jó sé hættur – „Þetta er auðvitað sorglegt“

Fullyrt að Aron Jó sé hættur – „Þetta er auðvitað sorglegt“
433Sport
Í gær

Íslenska liðið undirbýr sig af kappi á Spáni – Risastór vika framundan

Íslenska liðið undirbýr sig af kappi á Spáni – Risastór vika framundan
433Sport
Í gær

Útlit fyrir slag Manchester-liðanna um fokdýran miðjumann

Útlit fyrir slag Manchester-liðanna um fokdýran miðjumann