Ágúst Gylfason hefur samið við Stjörnuna í Garðabæ um að taka við þjálfun liðsins til næstu tveggja ára. Ágúst er reynslumikill þjálfari sem hefur komið víða við og náð góðum árangri með sín lið og verður gaman að sjá hann taka við liðinu og stýra því á komandi árum.
Blaðamaður 433.is ræddi við Ágúst áðan og spurði hann hvort að ráðningin ætti sér langan aðdraganda.
,,Ég var erlendis en hitti forráðamenn Stjörnunnar fyrir tíu dögum síðan. Þeir sögðu mér að ráðning á þjálfara væri í ferli og gæti tekið langan tíma. Ég veið þolinmóður og er kominn í starfið,“ sagði Ágúst í samtali við 433.is
En hvernig lýst honum á nýja starfið í Garðabænum?
,,Ég er mjög spenntur og er aðeins búinn að labba um svæðið hérna. Ég hef verið reglulegur gestur á Stjörnuvellinum frá árinu 1990. Það er glæsileg umgjörð hérna, nýtt knatthús í smíðum og hérna er frábær blanda af leikmönnum í hópnum og eðal mannskapur í kringum liðið. Þorvaldur kominn í stöðu rekstrarstjóra og svo erum við með Veigar Pál, Ejub og Rajko í teyminu.“
Það hefur verið mikið rætt og ritað um þjálfarastöðuna í Garðabænum en nokkrir af reyndustu þjálfurum landsins hafa verið orðaðir við starfið. Þar má nefna Ólaf Kristjánsson, Heimi Hallgrímsson, Ólaf Jóhannessson og Jón Þór Hauksson auk Ágústs sem segist hafa tekið eftir þessari umfjöllun.
,,Maður fylgdist með þessu í fréttamiðlum og tekur því eins og það er. Ég var sultuslakur, þeir héldu mér heitum í gegnum ferlið og þetta endaði með góðum fundi seint í gærkvöldi,“ segir Ágúst um ráðningarferlið og þjálfaraleitina.
Þorvaldur Örlygsson tók við þjálfarastöðunni hjá Stjörnunni í upphafi síðasta tímabils en árangurinn var undir væntingum. Stjarnan endaði í 7. sæti Pepsi Max deildarinnar. Þorvaldur tók síðan að sér stöðu rekstrarstjóra hjá knattspyrnudeild félagsins. Ágúst segir ljóst að það þurfi að styrkja leikmannahópinn.
,,Við vorum sammála um að það þarf styrkingu í liðið. Við munum styrkja liðið um 3-5 leikmenn fyrir komandi átök. Ég þarf þó að leggja mat mitt á núverandi hóp fyrst, við erum með Íslandsmeistara í 2. flokki og flotta unga stráka þannig að grunnurinn er góður,“ segir Ágúst Gylfason, nýráðinn þjálfari Stjörnunnar.
Ágúst hlakkar til að kynnast stuðningsmönnum Stjörnunnar sem hann segir vera þá bestu á landinu. ,,Við eigum frábæra stuðningsmenn, bestu stuðningsmenn Íslands.“
Ekki er orðið ljóst hver verður aðstoðarþjálfari Ágústs hjá Stjörnunni en þau mál eru komin í ferli.
„Það eru nokkur nöfn á borði og ég vona að gengið verði frá ráðningu sem fyrst,“ segir Ágúst Gylfason, nýráðinn þjálfari Stjörnunnar.