Georgia Steel, fyrrum keppandi í vinsælu raunveruleikaþáttunum Love Island, slær sér nú upp með Tyler Roberts, leikmanni Leeds United í ensku úrvalsdeildinni. Breska götublaðið The Sun greindi frá þessu.
Parið sást saman á japönsku veitingahúsi í Leeds síðastliðinn föstudag.
Hinn 23 ára gamli Roberts er nú í sumarfríi eftir að hafa tekið þátt í Evrópumóti landsliða með Wales fyrr í sumar.
Roberts hefur verið á mála hjá Leeds frá árinu 2018. Hann var hluti af liðinu sem komst upp í ensku úrvalsdeildina sumarið 2020. Þá lék hann 27 leiki með liðinu í úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.