Elísabet Gunnarsdóttir þjálfari kvenna liðsins Kristianstads í Svíþjóð segir áskorun fyrir Sveindísi Jane Jónsdóttur að venjast taktískari deild. Íslenska fótboltakonan Sveindís Jane er á láni hjá Kristianstads frá þýska liðinu Wolfsburg.
„Ég er rosa sátt við Sveindísi, og þetta er auðvitað pínulítil breyting fyrir hana. Þetta er bara öðruvísi deild. Ég er búin að horfa á leiki núna þegar ég hef verið hérna heima og maður sér alveg muninn. Hérna er mikið „power“ í leikjum, fram og til baka, eins og við köllum það í Svíþjóð – „Havaí“ fótbolti – færi á bága bóga, mörg mörk. En þetta er ekki alveg þannig í Svíþjóð. Eins og þið vitið sem hafið fylgst með þessari deild. Hún er taktískari og mér hefur fundist það svolítið „challenge“ fyrir Sveindísi að koma inn í þennan taktíska leik, og hún er bara að verða betri og betri þannig að ég held að þetta sé frábært milliskref fyrir hana áður en hún fer í stórlið Wolfsburg,“ sagði Elísabet sem hefur verið þjálfari Kristianstads frá árinu 2009.
Þegar hún var spurð út í Sif Atladóttur sem leikur einnig með félaginu sagði Elísabet: „Sif er alveg að komast í betra og betra form og mér fannst hún spila frábæran leik, síðasta leikinn fyrir pásuna. Þá var hún komin í vörnina aftur. Við söknuðum hennar þar. Hún er bara að fá til baka hraðann og svona gamla formið. Það verður gaman að sjá hana í seinni hlutanum,“ sagði Elísabet í samtali á Vísi.