fbpx
Sunnudagur 28.desember 2025
433Sport

Zlatan brast í grát á blaðamannafundi sænska landsliðsins – „Nú er allt í lagi“

Aron Guðmundsson
Mánudaginn 22. mars 2021 20:37

Mynd: Skjáskot

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Zlatan Ibrahimovic var á dögunum valinn aftur í sænska landsliðið en leikmaðurinn gaf það út að hann væri hættur að spila fyrir landsliðið fyrir fimm árum síðan.

Það var því tilfinningaþrungin stund fyrir leikmanninn er hann sat fyrir svörum á blaðamannafundi sænska landsliðsins í dag. Fáir hefðu átt von á því að hinn 39 ára gamli Zlatan Ibrahimovic, ætti eftir að spila annan leik fyrir sænska landsliðið.

Frammistaða Zlatan með AC Milan á tímabilinu hefur vakið verðskuldaða athygli og hann ákvað að taka fram landsliðsskóna að nýju til að hjálpa sænska landsliðinu í komandi leikjum.

„Að spila með landsliðinu er það stærsta sem maður gerir sem knattspyrnumaður. Ég fylgdist með sænska landsliðinu af hliðarlínunni síðustu ár og hugsaði alltaf með mér að ég gæti hjálpað þeim, ég gæti gert eitthvað,“ sagði Zlatan á blaðamannafundi.

Hann er hungraður í að ná árangri með landsliðinu.

„Ég hef nú fengið annað tækifæri á að spila fyrir landið mitt og ég mun gera það stoltur, en það er ekki það eina. Það hljómar kannski eins og ég sé bara ánægður með að vera hér en ég er kominn hingað til að ná úrslitum fyrir þjálfarann, liðsfélaga mína og Svíþjóð,“ sagði Zlatan.

Zlatan brast í grát á blaðamannafundinum er hann lýsti því hvernig sonur sinn, Vincent (12 ára), hefði tekið því að pabbi sinn væri að fara í burtu í landsliðsverkefni.

„Vincent grét þegar að ég fór frá honum en nú er allt í lagi,“ sagði Zlatan Ibrahimovic, leikmaður AC Milan og sænska landsliðsins.

Zlatan lagði landsliðsskóna á hilluna eftir Evrópumótið í Frakklandi 2016. Hann hefur leikið 116 landsleiki og skorað í þeim 62 mörk. Hann er markahæsti leikmaðurinn í sögu sænska landsliðsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Ekki búinn að missa klefann í Lundúnum

Ekki búinn að missa klefann í Lundúnum
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Gerir lítið út hegðun Palmer – ,,Nei, nei, ekkert vesen“

Gerir lítið út hegðun Palmer – ,,Nei, nei, ekkert vesen“
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum
Garner aftur til United?
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Amorim viðurkennir að tveir lykilmenn gætu kvatt United á næsta ári

Amorim viðurkennir að tveir lykilmenn gætu kvatt United á næsta ári
433Sport
Í gær

Tvær goðsagnir neita að ræða málin um 20 árum seinna – ,,Hann gerði risastór mistök með þessum ummælum“

Tvær goðsagnir neita að ræða málin um 20 árum seinna – ,,Hann gerði risastór mistök með þessum ummælum“
433Sport
Í gær

Byrjunarliðin í enska boltanum – Kemur fyrsti sigurinn í dag?

Byrjunarliðin í enska boltanum – Kemur fyrsti sigurinn í dag?
433Sport
Í gær

Wenger nýr yfirmaður Arnars Þórs

Wenger nýr yfirmaður Arnars Þórs
433Sport
Í gær

Segir að Ronaldo sé ekkert að hugsa um mörkin

Segir að Ronaldo sé ekkert að hugsa um mörkin
433Sport
Í gær

Kristján allt annað en hrifinn – „Þetta er bara galið“

Kristján allt annað en hrifinn – „Þetta er bara galið“