fbpx
Miðvikudagur 11.mars 2026
433Sport

Þjóðverjar sigurvissir í skugga óvissu um þjálfaramál – „Munum sanna fyrir öðrum að við séum sigurstranglegasta liðið“

Aron Guðmundsson
Mánudaginn 22. mars 2021 20:10

Olivier Bierhoff / Mynd: Þýska knattspyrnusambandið

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Olivier Bierhoff, yfirmaður knattspyrnumála hjá þýska karlalandsliðinu, sat fyrir svörum á blaðamannafundi í dag. Þýskaland mætir Íslandi í Dusseldorf á fimmtudaginn.

Bierhoff var skýr í svörum er hann lagði upp næstu leiki þýska landsliðsins sem eru fyrstu leikirnir í undankeppni HM.

„Við nálgumst verkefnið með mikilli orku og erum spenntir fyrir því. Ég vona að auk þess að ná í jákvæð úrslit munum við sanna fyrir öðrum að við séum sigurstranglegasta liðið í riðlinum,“ sagði Bierhoff á blaðamannafundi.

Leikirnir koma á viðburðaríkum tíma hjá þýska landsliðinu. Joachim Löw, landsliðsþjálfari þýska karlalandsliðsins greindi frá því á dögunum að hann myndi hætta sem landsliðsþjálfari eftir Evrópumótið í sumar.

Bierhoff segir að þessi ákvörðun Löw muni ekki hafa áhrif á leik þýska landsliðsins í komandi leikjum.

„Frá mínu sjónarhorni áhugasamur um verkefnin framundan og spenntur. Fyrir hann er það mikilvægt að lifa í núinu, hann er ekki að hugsa um það hvað mun gerast eftir mótið.“

„Þjálfarinn veit að þetta eru hans síðustu mót og það gefur honum frjálsræði til ákvarðanatöku til þess að ná því besta úr liðinu. Það er gott, burtséð frá öllu öðru tekur maður eftir þeim sterku tengslum sem leikmennirnir hafa við Joachim Löw. Þeir vilja allir kveðja hann á góðan hátt,“ sagði Olivier Bierhoff, yfirmaður knattspyrnumála hjá þýska landsliðinu.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Vill til Spánar þrátt fyrir áhuga innan Englands

Vill til Spánar þrátt fyrir áhuga innan Englands
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Dramatík í Newcastle – Ótrúlegur leikur í Madríd

Dramatík í Newcastle – Ótrúlegur leikur í Madríd
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum
Walker kallar þetta gott
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Gervigreindin raðar niður Evrópumeisturum komandi ára – Afar óvænt nafn á bikarinn í fyrsta sinn

Gervigreindin raðar niður Evrópumeisturum komandi ára – Afar óvænt nafn á bikarinn í fyrsta sinn
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Gefur innsýn inn í endurhæfingu sína – Notar hjól sem vekur athygli

Gefur innsýn inn í endurhæfingu sína – Notar hjól sem vekur athygli
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Segir frá sorglegum degi í herbúðum United á dögunum

Segir frá sorglegum degi í herbúðum United á dögunum
433Sport
Í gær

Ólátabelgurinn Barton í haldi lögreglu – Handtekinn eftir slagsmál í golfklúbbi

Ólátabelgurinn Barton í haldi lögreglu – Handtekinn eftir slagsmál í golfklúbbi
433Sport
Í gær

Jökull kallar eftir breytingum fyrir sumarið – „Er einfaldlega of stór til að næg stemning myndist þar“

Jökull kallar eftir breytingum fyrir sumarið – „Er einfaldlega of stór til að næg stemning myndist þar“