fbpx
Fimmtudagur 03.júlí 2025
433Sport

Aston Villa byrjar tímabilið á sigri

Aron Guðmundsson
Mánudaginn 21. september 2020 18:58

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Aston Villa byrjaði tímabilið sitt í Ensku Úrvalsdeildinni á sigri er þeir tóku á móti Sheffield United á Villa Park í kvöld. Lokatölur 1-0.

Á 12. mínútu fékk John Egan fyrirliði Sheffield að líta rauð spjaldið eftir að hafa brotið á Ollie Watkins, framherja Aston Villa.

Á 36. mínútu fékk Sheffield United vítaspyrnu, John Lundstram tók spyrnuna en Emiliano Martínez sem nýverið gekk til liðs við Aston Villa frá Arsenal, gerði sér lítið fyrir og varði spyrnuna.

Á 63. mínútu kom varnarmaðurinn Ezri Konsa, Aston Villa yfir með skallamarki. Þetta reyndist eina mark leiksins.

Aston Villa með sigur í sínum fyrsta leik í deildinni og þeir sitja eftir leikinn í 9. sæti deildarinnar. Sheffield United eru hins vegar stigalausir í 17. sæti deildarinnar eftir tvo leiki.

Aston Villa 1-0 Sheffield United
1-0 Ezri Konza (’63)
Rautt spjald: John Egan, Sheffield United (’12)

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Þetta hafði þjóðin að segja um leikinn – „Það sýður á mér“

Þetta hafði þjóðin að segja um leikinn – „Það sýður á mér“
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Einkunnir leikmanna Íslands eftir magalendingu í Thun

Einkunnir leikmanna Íslands eftir magalendingu í Thun
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Gyokeres vill slíta öll tengsl við Portúgal og sparkar kærustunni

Gyokeres vill slíta öll tengsl við Portúgal og sparkar kærustunni
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Stelpurnar okkar fengu frábærar móttökur fyrir fyrsta leik – Myndband

Stelpurnar okkar fengu frábærar móttökur fyrir fyrsta leik – Myndband
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Liverpool hafnaði öllu samtali við Bayern og sagði kantmanninn ekki til sölu

Liverpool hafnaði öllu samtali við Bayern og sagði kantmanninn ekki til sölu
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

United tapar milljónum punda – Varð ljóst þegar félagið birti þessa mynd í gær

United tapar milljónum punda – Varð ljóst þegar félagið birti þessa mynd í gær
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Ekkert að gerast hjá Arsenal og Gyokeres

Ekkert að gerast hjá Arsenal og Gyokeres
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Þór Bæring leitar að fyrsta sigrinum í fjórðu tilraun – „Það var aldrei að fara að klikka“

Þór Bæring leitar að fyrsta sigrinum í fjórðu tilraun – „Það var aldrei að fara að klikka“