Hólmbert, er búinn að skora 8 mörk í fyrstu 9 leikjunum í efstu deild Noregs, er eftirsóttur af Parma, SPAL og Lecce en öll þessi lið eiga það sameiginlegt að hafa verið í efstu deild Ítalíu á leiktíðinni sem er að ljúka.
Hólmbert er 27 ára gamall sóknarmaður og er hann samningsbundinn Aalessund FK. Samningur hans við félagið rennur út í desember á þessu ári og því er talið að kaupverðið á honum verði ekki gífurlega hátt.
Fjölmiðillinn Forza Italian Football greinir einnig frá því að liðin Gent í Belgíu og AZ Alkmaar í Hollandi hafi einnig áhuga á Hólmberti og er hann því afar eftirsóttur þessa stundina. Samkvæmt Forza Italian Footbball vill Hólmbert helst fara til Parma en hann væri einnig til í að fara til SPAL eða Lecce en bæði þau lið féllu úr efstu deild Ítalíu á leiktíðinni sem er að ljúka þar.