Marcus Rashford, leikmaður Manchester United, verður frá keppni í allt að þrjá mánuði vegna meiðsla.
Þetta staðfesti birti lýsandinn Martin Tyler í dag er hann sá um að lýsa leik United og Liverpool á Anfield.
Liverpool vann 2-0 heimasigur í kvöld en Rashford var ekki í leikmannahóp gestanna.
Rashford haltraði af velli gegn Wolves í bikarnum í vikunni en hann er að glíma við bakmeiðsli.
Það er mikið áfall fyrir United að missa Rashford í 2-3 mánuði en hann er einn mikilvægasti leikmaður liðsins.