fbpx
Fimmtudagur 03.júlí 2025
433Sport

Þungt verkefni að endursemja við alla: Vill að KSÍ dæli peningum út

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 22. maí 2020 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Páll Kristjánsson formaður knattspyrnudeildar KR segir reksturinn afar þungan og kallar eftir því að KSÍ gefi fjármuni í félögin.

Páll tók við starfinu á dögunum og hefur þurft að taka til í rekstri KR.

„Þetta eru búnir að vera mjög erfiðir og krefjandi þrír mánuðir – mars, apríl og maí. Það hafa verið stórar áskoranir en við höfum unnið mjög vel í okkar málum og búnir að taka verulega til í rekstrinum. Það er búið að endursemja við næstum allan meistaraflokk karla, sem er stærsti kostnaðarliður á rekstri deildarinnar,“
sagði Páll í hlaðvarpi KR.

Búið er að endursemja við flesta leikmenn í karlaliði félagsins. „Ég get alveg sagt að það hafi verið erfitt að endursemja við leikmenn. Það er þó ekki af því að strákarnir hafa ekki verið ósanngjarnir, þvert á móti. Auðvitað eru menn missveigjanlegir og ég held það endurspeglist fyrst og fremst eftir fjölskylduaðstæðum hvers og eins.“

Hann kallar eftir því að Guðni Bergsson formaður KSÍ kafi í sjóði sambandsins og rétti félögunum fjármuni. „Ég tel KSÍ sitja á sjóðum sem á að ráðstafa til aðildarfélaganna. Menn virðast vera að bíða eftirhvað ÍSÍ ætlar að gera, hvað ætlar ríkisstjórnin að gera og hvað ætla hinir og þessir að gera. Við erum að fara inn í þriðju mánaðarmótin án þess að það sé eitthvað gert,“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Þetta hafði þjóðin að segja um leikinn – „Það sýður á mér“

Þetta hafði þjóðin að segja um leikinn – „Það sýður á mér“
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Einkunnir leikmanna Íslands eftir magalendingu í Thun

Einkunnir leikmanna Íslands eftir magalendingu í Thun
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Gyokeres vill slíta öll tengsl við Portúgal og sparkar kærustunni

Gyokeres vill slíta öll tengsl við Portúgal og sparkar kærustunni
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Stelpurnar okkar fengu frábærar móttökur fyrir fyrsta leik – Myndband

Stelpurnar okkar fengu frábærar móttökur fyrir fyrsta leik – Myndband
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Liverpool hafnaði öllu samtali við Bayern og sagði kantmanninn ekki til sölu

Liverpool hafnaði öllu samtali við Bayern og sagði kantmanninn ekki til sölu
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

United tapar milljónum punda – Varð ljóst þegar félagið birti þessa mynd í gær

United tapar milljónum punda – Varð ljóst þegar félagið birti þessa mynd í gær
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Ekkert að gerast hjá Arsenal og Gyokeres

Ekkert að gerast hjá Arsenal og Gyokeres
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Þór Bæring leitar að fyrsta sigrinum í fjórðu tilraun – „Það var aldrei að fara að klikka“

Þór Bæring leitar að fyrsta sigrinum í fjórðu tilraun – „Það var aldrei að fara að klikka“