Leroy Sane, leikmaður Manchester City, er að spila sinn fyrsta leik eftir langan tíma frá vegna meiðsla.
Sane hefur ekkert spilað síðan í byrjun tímabilsins en hann sleit krossband í hné á síðasta ári.
Þessi 24 ára gamli leikmaður byrjaði að æfa með aðalliðinu seint í janúar og er að jafna sig.
Sane var í byrjunarliði U23 liðs Manchester City í kvöld sem er að spila við Arsenal og er staðan 1-1.
Það styttist því í að Sane geti byrjað á fullu með City sem á erfiða leiki á næstu vikum.