HK/Víkingur 0-1 Breiðablik
0-1 Berglind Björg Þorvaldsdóttir(19′)
Breiðablik er komið aftur á toppinn í Pepsi Max-deild kvenna eftir leik við botnlið HK/Víkins í kvöld.
Blikastúlkur voru tveimur stigum á eftir Val fyrir leik kvöldsins og fengu því þrjú dýrmæt stig.
Eitt mark dugði liðinu til sigurs en það skoraði Berglind Björg Þorvaldsdóttir í fyrri hálfleik.
Blikar eru nú með eins stigs forskot á toppnum en Valur á leik til góða.