Andrew Akingbaje átti að eiga glæsta framtíð í fótboltanum en hann hefur nú verið dæmdur í tveggja ára fangelsi. Hann lamdi konu ítrekað í London.
Akingbaje er 24 ára gamall og lék með Accrington Stanley, hann er sagður tengjast glæpagengi í London.
Atvikið átti sér stað í London 1 janúar á þessu ári, Akingbaje lamdi konuna ítrekað fyrir utan skemmtistað í borginni.
Atvikið náðist á myndband og var sýnt í réttarsal þegar Akingbaje var dæmdur í fangelsi.
Hann er sagður hættulegur konum en hann lamdi Krystal Mission sem er 21 árs gömul, ítrekað.
Þetta skuggalega atvik má sjá hér að neðan.