Fyrsta umferð ensku úrvalsdeildarinnar fór fram um helgina en Liverpool byrjaði á því að leika sér að Norwich.
Englandsmeistarar, Manchester City pökkuðu West Ham saman á útivelli.
Jóhann Berg Guðmundsson var á skotskónum í sigri Burnley á Southampton og Gylfi Þór Sigurðsson byrjaði er Everton sótti stig til Crystal Palace.
Arsenal vann fínan útisigur á Newcastle og Manchester United vann öruggan 4-0 sigur á Chelsea.
Daily Mail mun í vetur fylgjast með allri tölfræði leikmanna og raða þeim í röð, eftir frammistöðum.
Hér eru þeir 10 bestu eftir fyrstu helgina.